PEYSAN

Er peysa hluti manneskjunnar? Og þá hvaða manneskju – þeirrar sem prjónaði hana – þeirrar sem gaf hana – eða þeirrar sem á hana? Það hefur flökrað að mér áður – almynd – ef peysa er hluti af manneskju þá er hægt að skapa almynd persónunnar úr bylgjunum frá peysunni. Ég held – ég ítreka – ég held að ég sé almynd.

 

Fyrri    –    Yfirlit örsagna    –    Næsta