Ég er með bumbu – stóra bumbu. Það er sérlega sorglegt í mínu tilfelli sökum þess að ég er mjög mjór og því verður bumban mun meira áberandi. Eftir því sem bumban hefur stækkað í áranna rás, þá hef ég kappkostað að draga hana inn þegar verið er að taka myndir af mér.
Á meðan ég var bumbulaus þá átti ég ekki í neinum vandræðum með að fara í bólið með öðrum mönnum. Þeir voru á mínum aldri eða yngri – bumbulausir. Nú á ég í talsverðum erfiðleikum með að finna mér bólfélaga – bumbulausan. Kannski þarf ég að brjóta odd af oflæti mínu – sætta mig við mína bumbu og annarra. Annar kostur er jú að hætta að láta mig dreyma um hjásvæfu.
Fyrri – Yfirlit góðgætis – Næsta