„Sjáið þið vesalinginn! Hann er á stelpuhjóli! Eru pabbi þinn og mamma svona aum – þarftu að stela hjólinu hennar systur þinnar – þessarar feitu brussu?“ Þrír strákar úr efri bekk Barnaskólans stóðu þarna gleiðfættir og ögrandi.
„Ertu kommúnisti eins og mamma þín og pabbi – og vitlausi frændi þinn?“
„Nei, ég er ekki kommúnisti.“ Ég vissi að ég var að svíkja pabba og mömmu. Þau vildu bara að allir á Íslandi yrðu jafnir. Hvernig gat ég orðið jafningi þessara stráka?
Fyrri – Yfirlit örsagna – Næsta