Eitt af því sem ég sakna mikið eftir að ég settist í helgan stein sem kennari er það að geta meldað mig veikan þegar ég var þungur í skapi og þurfti að taka mér hvíld í amstri daganna.
Reyndar notaði ég afsökunina eitt sinn í nokkuð sérstökum aðstæðum. Ég hafði mikið að gera í störfum utan skólans; ég var ritstjóri blaðs Alþýðubandalagsins í Hafnarfirði; formaður bandalagsins þar í bæ; það var mikið að gerast í baráttunni gegn hernum; starfið með Leikfélagi Hafnarfjarðar í hámarki: og ekki síst var ég að byrja í sambandi við tilvonandi konu mína og tvær fósturdætur. Yfirferð verkefna frá nemendum hafði því farist fyrir og ég þurfti því á svo sem einum degi að halda til að sinna þeim. Eftir þennan “veikindadag” mætti ég í skólann daginn eftir – endurnærður á sál og líkama.
Fyrri – Yfirlit góðgætis – Næsta