Kristrún í Hamravík

Leikverk byggt á samnefndri skáldsögu
Árni Blandon og Hallgrímur Hróðmarsson

Kristrún í Hamravík
Guðmundur G. Hagalín – Sigríður Hagalín í sjónvarpsmyndinni Kristrún í Hamravík og himnafaðirinn

Kynning
Sagan er eitt besta verk höfundarins. Aðalsöguhetja, Kristrún, er ein af eftirtektarverðustu persónum í íslenskum bókmenntum. Hún er orðin gömul, situr mestan part á rúmi sínu og prjónar. Hún vill tryggja að sonur hennar, Falur, taki við búinu. Hamravík er með dýrari jörðum á norðanverðum Vestfjörðum, mikil hlunnindajörð. Kristrún lætur sig dreyma um að Falur kvongist áður en hún deyr.
Eldri sonurinn Ólafur hefur gerst trúboði hjá bergenskum drottins sendiboðum. Hann vill selja jörðina og flytja í Tangarkaupstað. En Kristrún kann ráð gegn slíkum hugleiðingum og lætur sig ekki muna um að kalla drauginn Hamravíkur-Koll til hjálpar.
Kristrúnu verður að ósk sinni um stúlku handa Fali vegna þess að stúlkan Aníta kemur til Hamravíkur, en hún er að flýja frá yfirvöldum þar sem hún er grunuð um að hafa fargað barni sínu sem hún ól „úti um hagann“.
Málfar persónanna er mjög sérstætt. Guðmundur hafði tvær konur á Vestfjörðum sem fyrirmyndir að Kristrúnu.
Athugasemd til leikhópa
Verkið minnir um margt á bestu leikrit á tímabilinu frá 1910 til 1950. Það er því óvíst að það höfði beint til leikhópa í dag, en í verkefnum þeirra er gjarnan mikil áhersla lögð á að færa eldri verk til nútímans og draga fram nýstárlega útfærslu í leikstíl og myndrænni umgjörð verkanna. Því miður mistekst þetta tilraunaleikhús oft hrapalega. Og ýmsum verður hugsað: hefði ekki verið klókara að halda sig við gamla stílinn, því það er full ástæða til að sýna sígild verk án þess að „endurskapa“ þau.
Styrkur sígildra skáldverka og leikhúsverka er hliðstæður að því leyti til að báðar listgreinarnar sækja stoðir sínar í sterka og fjölbreytta persónusköpun ásamt liprum og dramatískum samtölum sem undirbyggja þróun persónanna. Með þetta í huga er leikgerðin á Kristrúnu í Hamravík samin.

 

Lesa í fullri lengd sem pdf 
Kristrún í Hamravík

 

Athugasemdir til leikhópa
Kristrún – Kynning á verkinu